Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Stykkishólmskirkja

Ósk
Hef séð
LandshlutiVesturland
Heimsóknir1,045 skoðað
LeiðarlýsingOpna í korti

Stykkishólmskirkja var vígð 6. maí 1990 og stendur hátt og sést víða að.  Kirkjan er steinsteypt með forkirkju og turni og tekur 300 manns í sæti. Kirkjan er ein af kennileitum Stykkishólms og önnur tveggja kirkja í Stykkishólmi í eigu Stykkishólmssafnaðar.  Gamla kirkjan í Stykkishólmi stendur við Aðalgötu 5 og var reist árið 1879 og þjónaði bæjarbúum í rúm 100 ár.
Stykkishólmskirkja er teiknuð af Jóni Haraldssyni arkitekt. Altaristaflan er eftir listakonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur, en hún sýnir Maríu Guðsmóður með Jesúbarnið. Kirkjan þykir hafa mjög góðan hljómburð og tónlistarlíf líflegt í kirkjunni. Nýtt 22 radda Klais orgel var vígt 2012. Kirkjan er opin virka daga kl. 10-17 og eftir samkomulagi (Hulda, sími 692 4936 / Gunnar sími 865 9945)

Gamla kirkjan er ekki opin, en hægt er að hafa samband við Norska Húsið (sími 433-8114) til að fá að skoða hana.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Stykkishólmskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

Kirkjur Íslands

Upplýsingar um kirkjuna

Vígsluár1990
Arkitekt / hönnuðurJón Haraldsson
ByggingarefniReinforced concrete
Turn
Sjá heimild

Einkunnir og umsagnir

Stykkishólmskirkja

Stykkishólmskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Stykkishólmskirkja?
Stykkishólmskirkja er í Stykkishólmi á Snæfellsnesi.
Er Stykkishólmskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Stykkishólmskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Stykkishólmskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Stykkishólmskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.