Stykkishólmskirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Stykkishólmskirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVesturland
Byggingarár1879
Vígsluár1990
Arkitekt / hönnuðurJón Haraldsson
ByggingarefniReinforced concrete
TurnJá

Stykkishólmskirkja var vígð 6. maí 1990 og stendur hátt og sést víða að.  Kirkjan er steinsteypt með forkirkju og turni og tekur 300 manns í sæti. Kirkjan er ein af kennileitum Stykkishólms og önnur tveggja kirkja í Stykkishólmi í eigu Stykkishólmssafnaðar.  Gamla kirkjan í Stykkishólmi stendur við Aðalgötu 5 og var reist árið 1879 og þjónaði bæjarbúum í rúm 100 ár.
Stykkishólmskirkja er teiknuð af Jóni Haraldssyni arkitekt. Altaristaflan er eftir listakonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur, en hún sýnir Maríu Guðsmóður með Jesúbarnið. Kirkjan þykir hafa mjög góðan hljómburð og tónlistarlíf líflegt í kirkjunni. Nýtt 22 radda Klais orgel var vígt 2012. Kirkjan er opin virka daga kl. 10-17 og eftir samkomulagi (Hulda, sími 692 4936 / Gunnar sími 865 9945)

Gamla kirkjan er ekki opin, en hægt er að hafa samband við Norska Húsið (sími 433-8114) til að fá að skoða hana.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vesturlandi

Einkunnir og umsagnir

Stykkishólmskirkja

Stykkishólmskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar