Strokkur
Hverir

Uppgötvaðu Ísland

Strokkur

Ósk
Hef séð
TegundGoshver
Ráðlagður heimsóknartími45 mín.
VirkniJá

Strokkur gýs á um 4-8 mínútna fresti, allt að 30 metra gosi og er mjög virkur. Hann hefur haldið uppi frægð svæðisins frá árinu 1963, en þá var gospípa hans hreinsuð. Strokkur myndaðist í jarðskjálfta árið 1789 og var virkur fram til 1896 þegar aftur komu jarðskjálftar sem lokuðu fyrir vatnsrásir til hans. Áður en hverinn var hreinsaður voru um 2 m niður á vatnsborðið í pípunni.

Hverirnir við Geysi eru af ýmsum gerðum. Geysir og hverirnir vestan hans og sunnan eru vatnshverir, þ.e. frá þeim rennur heitt vatn komið af miklu dýpi. 
Hitastigið er allt að 100°C og því sjóða sumir hverirnir, ef suða verður neðan yfirborðs gjósa þeir. Frá hverum norðan við Geysi rennur ekki vatn, heldur kemur aðeins upp gufa og nefnast slíkir hverir gufuhverir.

 

Heimild: Sjá hér

Heitir hverir
Goshverir
Gufuhverir
Gufuop
Sjóðandi vatn
Brennisteinsútfellingar
Bílastæði
Salerni
Útsýnisstaður
Aðgengilegt allt árið
Merkt gönguleið
Göngupallur
Öryggisgirðingar
Viðvörunarskilti
Haldið ykkur á merktum leiðum

Jarðhitaeinkenni

Strokkur er virkur goshver á Geysissvæðinu og gýs reglulega með vatnsstrók hátt upp í loft.

Öryggi

Haldið öruggri fjarlægð frá hvernum og farið ekki út fyrir afmörkuð göngusvæði.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Strokkur

Hverinn er hluti af Geysisvæðinu.

Algengar spurningar