Malarrifsviti
Vitar

Uppgötvaðu Ísland

Malarrifsviti

Ósk
Hef séð
Byggingarár1946
Fyrst kveikt1946
TegundLandviti
Turnhæð20,2 m
LjóseinkenniFl(4)WRG 30s
Drægni16 sjómílur
ByggingarefniSteinsteypa

Fyrst var reistur viti á Malarrifi árið 1917. Það var 20 m hár járngrindarviti sem smíðaður var í Reykjavík, fluttur í hlutum á staðinn og settur þar saman. Eins og margir þeirra járngrindavita sem byggðir voru hérlendis lét eldri Malarrifsvitinn fljótt undan síga fyrir veðrun og ryði og árið 1946 var núverandi viti byggður í hans stað.

Malarrifsviti yngri, hannaður af Ágústi Pálssyni arkitekt, er 24,5 m að hæð, steinsteyptur sívalur turn með fjórum stoðveggjum sem gefa honum sérstakt yfirbragð. Hann var húðaður með ljósu kvarsi en hefur nú verið kústaður með hvítri sementsblöndu. Ljóshúsið var áður á eldri vitanum. Það er íslensk smíð.

Gasljós var í vitanum fram til 1957 að hann var rafvæddur. Ljósið er magnað með 1000 mm linsunni sem kom á Malarrif 1917.

Vitavörður hafði fasta búsetu á Malarrifi frá 1917 til 1991. Íbúðarhús var byggt árið 1953 og stækkað 1966. Radíóviti var starfræktur á Malarrifi um nokkurt skeið í vélahúsi sem þar stendur enn. Malarrifsviti er í hópi friðaðra vita.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Formilock

 

Virkur viti
Sögulegur
Friðaður
Vitavarðarhús
Opið gestum
Bílastæði
Útsýnisstaður

Saga

Fyrsti vitinn á Malarrifi var reistur árið 1917. Núverandi steinsteypti viti var byggður árið 1946 og friðaður árið 2003.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Malarrifsviti

Malarrifsviti er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar