Uppgötvaðu Ísland
Hinn 19 ágúst 1935 hittust 27 menn í Samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri, í þeim tilgangi að stofna golfklúbb á Akureyri. Okkur sem í dag njótum góðs af framsýni þeirra og dugnaði verður óneitanlega hugsað til þeirra og það er ekki annað hægt en að fyllast aðdáun á baráttunni fyrir því að hefja golfíþróttina til vegs hér í bænum. Gunnar Schram var kosinn fyrsti formaður Golfklúbbs Akureyrar og var fyrsti golfvöllurinn 6 holur á Gleráreyrum.
Í núverandi aðsetri klúbbsins, að Jaðri, er starfræktur 18 holu golfvölur, æfingasvæði, sérverslun með golfvörur, veitingasala og leiga á golfbílum og -settum. Starfsemi klúbbsins er mest yfir sumartímann, þ.e. frá maí og fram í október, þegar mótahald o.fl. þess háttar fer fram.
Starfsemin utan þessa tíma hefur verið mjög vaxandi, en golfklúbburinn býður félögum sínum innanhússæfingaaðstöðu í Golfhöllinni, þar sem hægt er að æfa löngu höggin með því að slá í net, auk þess að geta æft pútt og vipp við fyrsta flokks aðstöðu. Einnig er í Golfhöllinni í boði að taka hring í golfhermi.
Árangur kylfinga í GA hefur verið góður í gegnum árin, sem sést best á fjölda Íslandsmeistara í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar um þá er að finna hér til hægri á síðunni.
Sjö manns skipa stjórn klúbbsins, fimm aðalmenn og tveir varamenn. Fjórir fastir starfsmenn eru hjá GA á ársgrundvelli, en klúbburinn sér um alla umhirðu, slátt o.þ.h. sem krefst fjölda starfsmanna yfir sumartímann.
Heimild: Sjá hérMynd: Golfklúbbur Akureyrar
Bóka rástíma
Vefur golfvallar
Jaðarsvöllur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Jaðarsvöllur er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.