Uppgötvaðu Ísland
Sundlaug
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Í boði eru tvær rennibrautir, busllaug, þrír heitir pottar úti og einn innipottur, eimbað og gufubað.
Sérstakir karlatímar eru í gufubaðið á miðvikudögum kl. 15-21 og föstudögum kl. 14-21 og kvennatímar þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15-21. Á öðrum tímum er hægt að panta tíma í gufuna.
Á sumrin er rekinn fjölskyldugarður með fjölbreyttum tækjum fyrir yngri kynslóðina á sundlaugarsvæðinu. Þar má meðal annars finna trambolín, hoppidýnu, rafmagnsbíla, minigolf og ýmiss önnur spennandi leiktæki. Opið 10.00-17.00 alla daga.
Afgreiðslutími Sundlaugar Akureyrar:
Sumar (28. maí - 1. september)Mánudaga til föstudaga 6.45-21.00Laugardaga og sunnudaga 8.00-19.30
Vetur (2. september - 27. maí)Mánudaga til föstudaga 6:45-21:00Laugardaga og sunnudaga 10:00-18:30
Heimild: Sjá hérMynd: www.akureyri.is
38.00–42.00 °C
Verð geta breyst. Skoðaðu vefsíðu sundlaugarinnar fyrir nýjustu upplýsingar.
Vetur: mán–fös 06:45–21:00, lau–sun 09:00–19:00. Sumar: mán–fös 06:45–21:00, lau 08:00–21:00, sun 08:00–19:30.
Tvær 25 m upphitaðar útilaugar. Fimm heitir pottar, 38–42°C. Barnalaug, kaldur pottur, eimbað og þrjár vatnsrennibrautir. Sérklefi og færanleg sundlaugarlyfta eru í boði.
Síðast staðfest: 3. september 2026
Sundlaug Akureyrar
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Býður upp á fjölbreytta aðstöðu.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.