Uppgötvaðu Ísland
Velkomin á Hernámssetrið
Hernámssetrið að Hlöðum var opnað 19. maí árið 2012.
Á Hernámssetrinu er rakin einstök og merkileg saga hernáms á árunum 1940 til 1945, saga sem breytti friðsælli sveit í umgjörð heimsviðburða og skipti sköpum fyrir sigur bandamanna í síðari heimsstyrjöld. Þar getur að líta vandað safn minja og minninga sem tengjast sögu hernáms í Hvalfirði á þessum örlagaríku umrótatímum.
Hernámssetrið rekur sögu hersetunnar og skipalestanna, sem lögðu upp í langa og erfiða siglingu frá bækistöðinni í Hvalfirði, og gefur innlendum og erlendum ferðamönnum kost á að kynna sér þessa sögu og arfleifð hennar.
Helstu efnisþættir sem eru til sýnis á Hernámssetinu:
Bandaríkin
Börn og leikföng
Bretland
Hjúkrun
Ísland
Krambúð
Landhelgisgæslan (1926-45)
Öryggis og varnarmál
Rakarastofa
Rússland
Þýskaland
Hernámssetrið er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Hernámssetrið
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hernámssetrið er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.