Uppgötvaðu Ísland
Fossar Íslands
Glymur er hæsti foss Íslands, alls 198 metra hár. Hann er í Botnsá í Botnsdal í Hvalfirði. Botnsá kemur úr Hvalvatni en það er hraunstíflað vatn og annað dýpsta vatn landsins, um 160 m djúpt. Við botn dalsins er móbergsfjallið Hvalfell er hlóðst upp í gosi undir jökli á ísöld og stíflaði dalinn sem áður var mun lengri svo að þar varð til djúp kvos og þar er Hvalvatn.
Fara þarf með gát þegar gengið er að fossinum, en að honum liggja þrjár gönguleiðir. Erfitt er að sjá allan fossinn frá gilbörmunum. Mun betra útsýni fæst ef að gengið er upp með ánni að suðaustan og má þar sjá allan fossinn af tveimur bergsnösum, en leiðin er ekki fyrir lofthrædda. Sjálf gangan tekur um 2 klst.
Heimild: Sjá hér
Glymur er í Botnsá sem rennur úr Hvalvatni í Botnsdal. Fossinn fellur niður í djúpt og hrikalegt gljúfur.
Glymur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Fossinn er staðsettur í Hvalfirði og býður upp á magnaða göngu.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.