Uppgötvaðu Ísland
Kirkjur Íslands
Ein af merkustu og eftirtektarverðustu byggingum Flateyjar er kirkja eyjarinnar sem stendur þar sem eyjan er hæst í landslaginu. Hún var vígð 19. desember 1926 og er eitt fegursta minnisverk Guðjóns Samúelssonar, húsameistara og arkitekts.Flateyjarkirkja er um margt fagurt Guðshús, en það sem vekur mesta athygli flestra eru myndir í lofti kirkjunnar sem listamaðurinn Baltasar Samper gerði fyrst árið 1964.
Þær myndir eyðilögðust alveg vegna raka og annarra ófullkominna aðstæðna í kirkjunni. Árið 1992 málaði Baltasar ásamt eiginkonu sinni nýjar myndir á kirkjuloftið, en myndirnar sýna, sem hinar fyrri, þætti úr atvinnulífi og sögu hins forna Flateyjarhrepps.
Altaristaflan er mynd af bryggjunni í Flatey og sýnir Krist með fiskimönnunum. Kristur sem er íklæddur lopapeysu líkist talsvert listamanninum sjálfum og fiskimennirnir eru þeir Hafsteinn Guðmundsson bóndi í Flatey og Jóhannes Gíslason bóndi í Skáleyjum. Á bryggjukantinn er letrað Mt. 4 18-22, en í Matteusarguðspjalli, kafla 4, versunum 18-22 segir: “Hann gekk með Galelíuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið, en þeir voru fiskimenn. Hann sagði við þá: “Komið og fylgið mér, og ég mun láta yður menn veiða”. Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum. Hann gekk áfram þaðan og sá tvo aðra bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans. Þeir voru í bátnum, með Sebedeusi föður sínum, að búa net sín. Jesús kallaði þá, og þeir yfirgáfu jafnskjótt bátinn og föður sinn og fylgdu honum”.Í loftinu svífur svo örn ofar útsýnisvörðu Ólafs Teitssonar í Sviðnum. Örninn er kallaður konungur fuglanna, en misvel þokkaður í eyjunum. Hann þykir vágestur í varplöndum og veldur þar oft miklum skaða.
Heimild: Sjá hérMynd: Lilia Lima
Flateyjarkirkja
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Flateyjarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.