Frisbígolfvöllurinn á Hömrum er skemmtilegur og fjölbreyttur 18 brauta frisbígolfvöllur sem liggur fyrir ofan tjaldsvæðið að Hömrum og nær inn í Kjarnaskóg.
Fyrsta brautin er staðsett inni á tjaldsvæðinu þar sem kastað er yfir eina af tjörnunum á svæðinu, sem setur skemmtilegan svip á upphaf leiksins. Völlurinn reynir töluvert á hæfni spilara og býður upp á bæði hvíta og rauða teiga, þannig að hægt er að velja erfiðleikastig eftir getu.
Sumarið 2018 var völlurinn stækkaður í 18 brautir og er hann í dag eini 18 brauta frisbígolfvöllurinn á Íslandi utan Gufuness í Reykjavík.
Skorkort og vallarkort fást í þjónustumiðstöðinni á svæðinu, auk þess sem þar eru seldir frisbígolfdiskar.
Upplýsingar fengnar af www.folf.is.
Hér getur þú sótt mynd og skorkort af vellinum: Hamrar vallarkort 2023
Firsbígolf Hamrar er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Firsbígolf Hamrar er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com