Fáskrúðsfjörður

Ósk
Séð

Fáskrúðsfjörður er fallegur fjörður fyrir miðju Austfjarða. Nafn sitt dregur fjörðurinn af eyjunni Skrúði úti fyrir firðinum.Í firðinum voru tvö sveitarfélög, Fáskrúðsfjarðarhreppur og Búðahreppur, en Búðahreppur varð til árið 1907, þegar þéttbýlið Búðir var gert að sérstöku sveitarfélagi. Þessi sveitarfélög eru nú hluti Fjarðarbyggðar. 

Atvinnulíf byggist að mestu á sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða, auk smærri fyrirtækja í iðnaði og verslun, en alla helstu þjónustu er að finna á Fáskrúðsfirði.
Seinni hluta 19.aldar og fram á þá 20. var Fáskrúðsfjörður ein helsta bækistöð franskra sjómanna hér á landi og óvíða á Íslandi er að finna jafn miklar minjar tengdar þeim, s.s. hús, grafreiti o.fl. Ýmis örnefni tengjast veru Frakka hér og einnig eru í firðinum örnefni sem tengjast Tyrkjaráninu 1627. Þjóðhátíðardagur Frakka 14. júlí er fánadagur á Fáskrúðsfirði. 

Læknishúsið byggðu Frakkar árið 1907 fyrir Georg Georgsson þáverandi ræðismann Frakka og lækni við Franska spítalann. Húsið, sem stendur við Hafnargötu 12, var að mestu gert upp á árunum 1990 - 1991. Þar voru bæjarskrifstofur fram til ársins 2006.
Franski spítalinn var byggður á árunum 1903 - 1904 en var færður af grunninum árið 1940 og fluttur í Hafnarnes sunnan fjarðarins. Þar var hann notaður sem fjölbýlishús fram á 8. áratuginn.  Nú vinnur Minjavernd að endurbyggingu spítalans, fyrir framan Læknishúsið.  Gert er ráð fyrir að í Læknishúsinu og Franska spítalanum verði rekið hótel og safn um frönsku sjómennina.

Heimild: Sjá hér

Fáskrúðsfjörður er sögulegt þorp á Austurlandi.

Austurland

623 Manns

1,960 skoðað

Fáskrúðsfjörður

Þorpið hefur ríka tengingu við franska sjómennsku.

Algengar spurningar

Hvar er Fáskrúðsfjörður?
Fáskrúðsfjörður er sjávarþorp á Austurlandi.
Hvað er Fáskrúðsfjörður þekktur fyrir?
Staðurinn er þekktur fyrir franska arfleifð og söguleg hús.
Er höfn í Fáskrúðsfirði?
Já, þar er virk höfn fyrir fiskveiðar og þjónustu.
Er þjónusta fyrir ferðamenn á staðnum?
Já, þar er gisting, veitingastaðir og safn.
Er Fáskrúðsfjörður góður viðkomustaður?
Já, hann er vinsæll viðkomustaður á Austurlandi.