Eldey
Eyjur

Uppgötvaðu Ísland

Eldey

Ósk
Hef séð
TegundKlettaeyja
ByggðNei

Eldey undan Reykjanesi er með stærri súluvörpum í heimi, en þar verpa um 14.000 - 18.000 pör árlega. Á Íslandi verpir súlan einungis á fáeinum stöðum, fyrir utan Eldey. Í Vestmannaeyjum verpir súlan í  Súlnaskeri, Geldungi, Hellisey og Brandi. Þá er súluvarp í Skoruvík á Langanesi, Rauðanúp á Melrakkasléttu og á eyjunni Skrúði í Fáskrúðsfirði. Talið er að varpstofninn við Ísland sé rúm 30 þúsund pör.

Um sextíu prósent heildarstofnsins verpir á Bretlandseyjum og Írlandi og stærstu súluvörp í heimi eru á St. Kilda, eyjaklasa vestur af Skotlandi og Bonaventure-eyju við Kanada en um 60.000 pör verpa á hvorum stað. Næst í röðinni er Bass Rock við Skotland sem súlan dregur sitt latneska heiti af. 

Eldey er um 77 m hár klettadrangur um 15 km suðvestan við Reykjanes. Eldey er mynduð úr móbergi og er 0,03 km2. Hún er innsta skerið í skerjaklasa miklum sem stendur á einni grynningu og nær 45 sjómílur frá landi. Kallast hann Fuglasker eða Eldeyjar. Eitt þessara skerja var Geirfuglasker þar sem voru síðustu höfuðstöðvar geirfuglsins en það sökk að mestu í eldsumbrotum 1830.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Hákon Þ

Bátur nauðsynlegur
Fuglavarp
Sjávarhamrar
Friðlýst svæði

Jarðfræði

Eldey er brött klettaeyja á Reykjaneshrygg þar sem eldvirkni og sjávarrof hafa mótað bergið.

Náttúra

Eldey er mikilvægt varpsvæði sjófugla og einkennist af háum klettaveggjum.

Besti árstími

Sumar

Heimsóknarráð

Eyjan er ekki hefðbundinn ferðamannastaður og aðgengi er mjög takmarkað.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Eldey

Eldey er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.