Uppgötvaðu Ísland
Kirkjur Íslands
Bygging Borgarneskirkju hófst í maí 1953. Halldór H. Jónsson teiknaði kirkjuna og Sigurður Gíslason byggingameistari annaðist smíði hennar. Forystu fyrir bygginganefnd hafði Halldór Sigurðsson sparisjóðsstjóri. Ásmundur Guðmundsson, biskup Íslands, vígði kirkjuna á uppstigningadag, 7. maí 1959. Kirkjan er steinsteypt og tekur 200 manns í sæti. Meðal athyglisverðra muna í kirkjunni eru: altarisdúkur og klæði eftir Sigrúnu Jónsdóttur, kaleikur og patína gefin af Margréti og Thor Jenssen. Trékross er yfir altari. Skírnarfonturinn er útskorinn af bræðrunum Kristjáni og Hannesi Vigfússonum á Akureyri. Skírnarskálin er úr messing. Í kirkjunni er pípuorgel, 13 radda frá Walker í Þýskalandi. Það kom í kirkjuna 1967. Einnig er flygill í kirkjunni og fer tónleikahald í Borgarnesi þar oft fram. (Heimild: Byggðir Borgarfjarðar III, 337-338).Borgarneskirkja er falleg bygging teiknuð af Halldóri H. Jónssyni. Framkvæmdir við hana hófust 1953 en hún var vígð árið 1959. Gagngerar endurbætur voru gerðar á kirkjunni á árunum 1992-93.
Heimild: Sjá hér
Borgarneskirkja
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hluti af bæjarmyndinni.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.