Borgarkirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Borgarkirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVesturland
Byggingarár1881
Framkvæmdir hófust1880
Arkitekt / hönnuðurJörundur Þorsteinsson
ByggingarefniTimber
ÞakefniCorrugated iron
Stærð9,8 × 6,45 m
TurnJá
FriðunFriðuð frá 1990

Borgarkirkja er timburhús, 9,80 m að lengd og 6,45 m á breidd, með forkirkju undir minna formi, 2,56 m að lengd og 2,78 m á breidd. Þakið er krossreist, klætt bárujárni, og upp af framstafni er ferstrendur turn með risþaki. Hann stendur á lágum stalli. Kirkjan er klædd listaþili og stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkjunnar eru fjórir póstagluggar með þriggja rúðu römmum og einn heldur minni á framstafni. Fyrir kirkjudyrum er spjaldahurð og þvergluggi og brík yfir.

Að framkirkju eru spjaldsettar vængjahurðir og gangur inn af þeim og bekkir hvorum megin hans. Tvær innstu bekkjaraðirnar eru styttri en aðrir kirkjubekkir. Söngloft er yfir fremsta hluta framkirkju og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir spjaldaþili og borðaklædd hvelfing er yfir kirkjunni stafna á milli.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vesturlandi

Einkunnir og umsagnir

Borgarkirkja

Borgarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar