Bólstaðarhlíðarkirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Bólstaðarhlíðarkirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiNorðurland
Byggingarár1888
Arkitekt / hönnuðurÞorsteinn Sigurðsson
ByggingarefniTimber
ÞakefniCorrugated iron
Stærð7,62 × 6,37 m
TurnJá
FriðunFriðuð frá 1990

Bólsstaðarhlíð er gamalt höfuðból, höfðingjasetur og kirkjustaður. Sumir telja að Svartárdalsmynnið, sem Bólstaðarhlíð stendur í, sé Ævarsskarð hið forna.  Ævarsskarð er þá ysia hluti Svartárdals, þar sem hann sveigir til vesturs og opnast á mörkum Blöndudals og Langadals. Norðurlandsvegur liggur hjá Bólstaðarhlíð upp á Vatnsskarð og heitir þar Bólstaðarhlíðarbrekka (Botnastaðabrekka) í daglegu máli. Veðursæld er mikil í Bólstaðarhlíð og festir lítt snjó í fjallinu.

Í Landnámabók segir að Ævar Ketilsson, sem nam Langadal, hafi bíð í Ævarsskarði. Þar eru fornar tóttir.

Í Bólsstaðarhlíð var fyrrum útkirkja frá Bergsstöðum. Þar var kirkja helguð Mikael erkiengli í kaþólskum sið. Bólstaðarhlíðarprestakall var stofnað árið 1970. Til þess heyra kirkjur í Bólstaðarhlíð, á Bergsstöðum, Auðkúlu, Svínavatni og Holtastöðum. 

Núverandi kirkja í Bólstaðarhlíð var vígð 1889.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Norðurlandi

Einkunnir og umsagnir

Bólstaðarhlíðarkirkja

Bólstaðarhlíðarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar