Bolafjall er 638 metra hátt fjall fyrir ofan Bolungarvík. Á Bolafjalli var ein af fjórum ratsjárstöðum sem Ratsjárstofnun rak fyrir hönd varnarliðsins. Ratsjárstöðin á Bolafjalli hóf rekstur 18. janúar 1992 en hefur nú verið lokað. Það liggur brattur akvegur upp á Bolafjall. Vegurinn hefur verið opinn bílum í júlí og ágúst. Ofan á Bolafjalli er rennislétt hrjóstrug háslétta og er þar útsýni til allra átta.
Bolafjall er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Engar umsagnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Bolafjall er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.