Hóll er kirkjustaður og fyrrum höfuðból við Bolungarvík. Hóll var löngum í eigu auðmanna og höfðingja. Á 14. og 15. öld var Hóll höfuðból Leppsættar sem var ein af valdamestu ættum landsins. Á síðari hluta 15. aldar var Hóll höfuðból Björns ríka Þorleifssonar af ætt Vatnsfirðinga, voldugustu ætt Vestfjarða á þeim tíma.
Hóll hefur verið kirkjustaður síðan um siðaskipti. Núverandi kirkja á Hóli var reist árið 1908, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni. Hún er úr timbri, járnvarin, og kom efnið frá Noregi, tilhöggvið að mestu. Prédikunarstóll er yfir altari. Í kirkjunni er útskorinn skírnarsár gerður af Ríkarði Jónssyni og kaleikur og patína frá 1801.
Í turni eru tvær stórar klukkur, önnur frá 1620 en hin frá 1775. Sú sögn fylgir klukkunum að þær hafi verið fengnar svo stórar til þess að hljómur þeirra heyrðist upp á Skálavíkurheiði en þar þótti reimt.
Heimild: Sjá hérMynd: LiliaLima
Hólskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Eigandi: Lilia Lima - Flickr
Hólskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com