Tjaldstæðið er um einn hektari að stærð, heitt og kalt vatn er á því. Boðið er uppá rafmagn fyrir húsbíla „bláir tenglar“, það eru tvö klósett og sturta.
Þeir sem eru á tjaldstæðinu koma oft í mat á kvöldin í veitingarsal gistiheimilisins og fá sér að borða og eru mjög velkomnir þangað. Gistiheimilið og veitingasalan er ca 3 – 400 metra frá og þar er hægt að fá mat og vín eins og áður segir. Þar er einnig frí-internet tenging, auk þess að þar er stór pallur sem fólk getur setið á.
Stutt er að ganga eftir gamalli þjóðleið yfir í Laxárdal, og komið er þá niður að bænum Þverá í Laxárdal sem hefur merkilegar og fallegar byggingar frá fyrrihluta 18. aldar.
Einnig eru hestaferðir sem hægt er hægt að kaupa sér í ef áhugi ef fyrir því.