Úlfarsfell

Ósk
Séð

Úlfarsfell liggur fyrir sunnan Mosfellsbæ og er 296 m hátt. Það er mjög áberandi með þverhníptum hömrum að vestan og fallegu skógræktarsvæði þar sem heitir Hamrahlíðarskógur. Fjallið er á landamörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar og er hægt að velja um margar gönguleiðir. Á Úlfarsfell má til dæmis ganga frá Skógræktarsvæðinu í Hamrahlíð, frá Skarhólamýri og frá Hafravatnsvegi hjá Skyggni. Gestabók er á Úlfarsfelli.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Úlfarsfell býður upp á gott útsýni.

Suðvesturland

4,106 skoðað

Úlfarsfell

Auðvelt aðgengi fyrir flesta.