Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Tekið var í notkun glæsilegt tjaldsvæði í Súðavík sumarið 2005. Tjaldsvæði er staðsett ofan til við félagsheimilið og er keyrt inn á svæðið frá innri enda Túngötu.
Útsýnið af tjaldsvæðinu er víðáttumikið og stórbrotið með sjónarhorn á fjallið Kofra í vestur, inn Álftafjörðinn og Kambsnesið í austri, ásamt því að hafa í augsýn á eyjuna Vigur sem er einn vinsælasti ferðamannastaður Súðavíkurhrepps.
Staðreyndir um tjaldsvæði Súðavíkur:
Slétt og gróið tjaldsvæði, slegið vikulega.Nýtt þjónustuhús, opið 24 klst á sólarhring, með góðri inniaðstöðu, m.a. tvö salerni með vaski, heitt og kalt vatn.Salerni með sturtuaðstöðu fyrir fatlaða.Skolvaskur með heitu og köldu vatni, þurrkukassar.Næg sorpílát, útiborð og bekkir.Tenglakassar með venjulegum tenglum og 3ja pinna tenglum.Aðstaða til losunar affallsvatns og seyru af ferðavögnum.Stór fjölskyldugarður með fjölda góðra leiktækja í um 5 mínútna göngufjarlægð.Daglegt eftirlit umsjónarmanns og góð umhirða.Um 17 km. frá Súðavík til Ísafjarðar.
GJALDSKRÁGjald fyrir tjald per nótt ....................................kr. 0Gjald fyrir 12. ára og eldri per nótt:....................kr. 1.000Gjald fyrir yngri en 12. ára per nótt:...................kr. 0Örorku og ellilífeyrisþegar.................................kr. 500Rafmagn fyrir ferðavagna per sólarhring:........... kr. 650
Heimild: Sjá hérMynd: Súðavík.is
Rúmgott tjaldsvæði með salernum og sturtum, þar á meðal aðstöðu fyrir hreyfihamlaða. Heitt og kalt vatn, rafmagn, sorpaðstaða, þvottaaðstaða og losun fyrir húsbíla eru til staðar. Leiksvæði er mjög nálægt.
Tjaldsvæði Súðavíkur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Góð aðstaða fyrir útilegu.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.