Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið Systragil er í landi Hróarsstaða, Fnjóskadal, Suður - Þingeyjarsýslu. Frá Akureyri eru 36 km í Systragil. Í Fnjóskadal vestan megin er beygt í suður, Illugastaðaafleggjara (vegnúmer 833) en hann liggur að Systragili sem er 5 km frá gatnamótum.
Tjaldsvæðið Systragil er mjög vel staðsett fyrir þá sem vilja kynnast Norðurlandi, njóta dvalar í góðu veðri og slappa af í rólegu umhverfi. Frá Systragili er stutt í flesta vinsælustu áningarstaði ferðamanna á svæðinu eins og Vaglaskóg ( göngufæri), Flateyjardal , Laufás, Fjörður, Goðafoss og Akureyri, 60 km í Mývatnssveit og 90 km til Húsavíkur, höfuðstaðs hvalaskoðunar.
Tjaldstæðin eru á tveimur stöllum en fastaleigusvæði á þriðja og jafnframt hæsta stallinum og einnig upp með læknum.
Rafmagn er á öllum stöllum, á neðsta stalli er tengt í útitengil við snyrtihús, á efri stöllum í kassa, leiktæki eru ofan við snyrtihús.
Stutt er í sund í Stórutjarnaskóla og á Illugastöðum, þá er stangveiði í Fnjóská. Lítil búð er í göngufæri í Vaglaskógi og stutt yfir í 9 holu golfvöll í Lundi. Merktar gönguleiðir eru bæði í Vaglaskógi og upp með Systragili, Þingmannaleið. Mikill gróður og lækurinn Systralækur.
Í hlíðunum fyrir ofan tjaldstæðið eru melar og skóglendi og þar má finna mikið af berjum og sveppum seinni part sumars.
Heimild: Sjá hérMynd: Systragil
Skjólgott tjaldsvæði í Fnjóskadal með upphituðum salernum, sturtu, heitu og köldu vatni, eldunaraðstöðu, rafmagni, þvottavél og þurrkara. Losun fyrir ferðasalerni og leiksvæði eru einnig í boði.
Tjaldstæðið Systragil
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Tjaldstæðið Systragil er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.