Tjaldstæðið Kleifar Mörk
Tjaldstæði

Uppgötvaðu Ísland

Tjaldstæðið Kleifar Mörk

Ósk
Hef séð

Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5km. frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð. Beint á móti tjaldsvæðinu er fótboltavöllur og stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.
Tjaldsvæðið er opið frá 1.júní til 31.ágúst.
Mikið er af skemmtilegum merktum gönguleiðum í nágreni tjaldsvæðisins og fallegum stöðum til að skoða.
Texti: kleifar.123.is

Aðstaða

Salerni
Drykkjarvatn

Leyfileg gisting

Tjöld

Nánari upplýsingar

Einfalt tjaldsvæði við Stjórnarfoss skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Á svæðinu eru tvö salerni, kalt rennandi vatn, borð og bekkir.

Einkunnir og umsagnir

Tjaldstæðið Kleifar Mörk

Hentar vel fyrir fjölskyldur.

Algengar spurningar