Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið er frábærlega staðsett, við hliðina á sundlaugunum í Laugardal. Auk sundlauganna er stutt í aðra þjónustu og afþreyingu. Má þar m.a. nefna íþróttaaðstöðuna í Laugardalnum, fjölskyldu- og húsdýragarðinn, grasagarðinn og listasafn Ásmundar Sveinssonar. Tjaldsvæðið er opið frá 15. maí – 15. september.
Á svæðinu er mjög góð aðstaða fyrir húsbíla og tjaldvagna. Um 40 bílar geta tengt samtímis í rafmagn og skammt frá svæðinu er aðstaða til að losa ferðasalerni. Ekki þarf að panta gistingu fyrirfram og ekki eru tekin frá pláss. Frá 1.júní - 1. september er 24 tíma gæsla á svæðinu og þurfa því gestir ekki að tilkynna komu sína ef þeir sjá fram á að vera seint á ferð. Sé ferðast saman á mörgum húsbílum eða tjaldvögnum eru menn þó hvattir til að láta vita af ferðum sínum. Stórir tjaldhópar (20+) eru hvattir til að gera slíkt hið sama.
Tjaldsvæðið í Laugardal er opið frá 15. maí - 15. september. Frá 15. maí - 1. júní og 1. -15. september er móttakan aðeins opin hluta úr degi ( nánari upplýsingar er að finna á Tjaldsvæðinu) en frá 1. júní - 1. september er 24 tíma gæsla á svæðinu. Gestir eru beðnir um að hafa samband við móttöku við komu, en ef þeir koma þegar hún er lokuð er þeim velkomið að koma sér fyrir og hafa síðan samband þegar móttakan opnar aftur. Í móttökunni er unnt að kaupa gas, rauðspritt, rafhlöður, póstkort, frímerki og ýmislegt annað sem ferðalangurinn þarf á að halda. Þar er einnig unnt að kaupa heit kaffi og kakó.
Eftirfarandi verðskrá gildir fyrir sumarið 2013:Gisting 1400 kr nóttin á mannRafmagn fyrir bíla 900 kr á dagSmáhýsi 9500 kr nóttin fyrir húsiðInternet 300 kr fyrir 30 mínWashing machine 450 krDryer 450 krBreakfast 1250 kr á mann Vinsamlegast athugið: Börn yngri en 13 ára dvelja frítt í fylgd með fullorðnum. Ekki þarf að panta gistingu fyrirfram og ekki eru tekin frá pláss. Sé ferðast saman á mörgum húsbílum eða tjaldvögnum eru menn þó hvattir til að láta vita af ferðum sínum. Hópar (20+) fá 10% afslátt af gistingunni.
Heimild: Sjá hérMynd: Reykjavik campsite
Nútímalegt tjaldsvæði með salernum, einkasturtum, gesteldhúsi, setustofu, þvottaaðstöðu, útivöskum og ókeypis Wi-Fi. Rafmagnstengingar eru í boði á merktum stæðum fyrir húsbíla.
Tjaldstæði Reykjavíkur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Vinsælt meðal ferðamanna.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.