Súlur

Ósk
Séð

Súlur eru bæjarfjall Akureyrar, fjallstindar sem rísa yfir bænum í suðvestri.

Súlur eru bæjarfjall Akureyrar, fjallstindar sem rísa yfir bænum í suðvestri.
 Vinsæl gönguleið liggur upp á tindana og tekur gangan um 5-6 klukkustund fram og tilbaka. Ekið er upp Súluveg og gengið frá bílastæðinu sem er við lok þess vegar í Glerárdalnum. Nær Akureyri rís Ytri-súla en litlu sunnar er Syðri-súla sem er hærri, 1.213 metrar. Súlur eru að mestu gerðar úr ljósu líparíti sem á uppruna í Öxnadalseldstöðinni, sem var virk fyrir 8-9 milljónum ára.

Hægt er að velja um nokkrar leiðir upp á fjallið. Algengast er að ganga upp frá bílaplaninu sem komið er á ef Súluvegurinn er ekinn inn í botn.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Jóna Kristín

Súlur eru vinsælar til göngu.

Norðurland

2,147 skoðað

Súlur

Frábært útsýni yfir Eyjafjörð.