Streitisviti
Vitar

Uppgötvaðu Ísland

Streitisviti

Ósk
Hef séð
Byggingarár1984
Fyrst kveikt1984
TegundLandviti
Turnhæð12 m
Ljóshæð17 m
LjóseinkenniFl(3)WRG 20s
Drægni14 sjómílur

Fyrst var reistur viti á Streitishorni árið 1922 er þar var settur upp járngrindarviti sem smíðaður hafði verið á járnsmíðaverkstæði ríkisins í Reykjavík. Þessi viti var starfræktur fram til ársins 1958 en var þá fjarlægður þar sem byggður hafði verið viti á Hlöðu, skeri í sunnanverðu mynni Breiðdalsvíkur. Hlöðuvitinn féll um koll í miklu óveðri og sjógangi í janúar 1984 og var núverandi Streitisviti byggður í staðinn það ár.

Streitisviti er 12 m að hæð, steinsteyptur áttstrendur turn sem hannaður var af Steingrími Arasyni verkfræðingi. Ljóshúsið er sænskrar gerðar, úr trefjaplasti. Vitinn var rafvæddur frá upphafi.

Heimild: Sjá hér

Virkur viti
Sögulegur

Saga

Fyrsti vitinn við Streitishvarf var byggður árið 1922 og var starfræktur til ársins 1958. Núverandi Streitisviti var byggður árið 1984. Svæðið við Streitishvarf er vinsælt útivistarsvæði.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Streitisviti

Fallegt útsýni yfir hafið.

Algengar spurningar