Sogin
Hverir

Uppgötvaðu Ísland

Sogin

Ósk
Hef séð
TegundJarðhitasvæði
Ráðlagður heimsóknartími1 klst. 30 mín.
VirkniJá

Sogin eru 150-200 m djúp leirgil sem mikill jarðhiti hefur verið í fyrrum og aðeins eimir af enn. Þægilegt er að ganga niður í Sogin sunnan við Dyngjurnar og útsýnið er stórbrotið og litadýrðin mikil. Leirkenndur jarðvegurinn er rokgjarn, en drekkur í sig bleytu. Fallegur hver er í hlíðinni sunnan við Sogalæk. Honum var fylgt niður Sogaselsdalur eða Sogadal, litið á tóftir þar sunnan við lækinn og síðan haldið að selsminjunum inni í Sogagíg eða Sogaselsgíg. Gígurinn er opinn til suðurs, girtur skeifulaga hamrabelti og hefur því myndað gott aðhald fyrir skepnur. Þarna var Sogasel frá Kálfatjarnarhverfi og jafnvel Krýsuvík. Margar kofatóftir eru á þremur stöðum í gígnum og kví undir vestari hamraveggnum og við nyrstu tóftina.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Sveinn Ingi

Gufuhverir
Gufuop
Brennisteinsútfellingar
Gönguleið
Haldið ykkur á merktum leiðum

Jarðhitaeinkenni

Sogin eru jarðhitasvæði þar sem litríkur jarðvegur og ummerki jarðhita setja sterkan svip á landslagið.

Öryggi

Gætið varúðar á jarðhitasvæðinu og forðist að ganga yfir viðkvæman eða heitan jarðveg.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Sogin

Sogin er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar