Síldarævintýrið á Siglufirði er ein elsta bæjarhátíð á Íslandi og verður haldin í 23. sinn næsta sumar. Hátíðin er haldin um Verslunarmannahelgina og verður haldin næsta sumar dagana 1.-5. ágúst. Um sex þúsund manns mættu á hátíðina í fyrra. Hátíðin hefur verið að lengjast og nú er vikan fyrir verslunarmannahelgina kölluð Síldardagar. Lögð er áhersla á fjölskylduvæna hátíð þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Leiktæki eru fyrir börnin, börnin komast á hestbak og söngkeppni og dorgveiðikeppni barnanna er afar vinsæl.
Við Rauðkuhúsin eru markaðir og boðið er upp á plokkfisk og síld alla daga utandyra. Þar eru einnig trúbadorar sem skemmta matargestum. Á Ráðhústorginu eru einnig trúbadorar og hljómsveitir og Síldarminjasafnið býður upp á sýninguna ,,Síldarsöltun“ og einnig rúgbrauð og síld. Myndlistasýningar eru í bláa húsinu við Rauðku og í Síldarminjasafninu (Gránu). Fjölmargir veitingastaðir bjóða upp á girnilegan mat og böll og tónleikar eru á hverju kvöldi. Útvarpsstöðin Trölli (frá Siglufirði) útvarpar hátíðinni alla dagana.
Heimild: FjallabyggðMynd: Anton Stefánsson
Síldarævintýrið á Siglufirði er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Eigandi: Sigló.is
Eigandi: Anton Stefánsson - Síða
Síldarævintýrið á Siglufirði er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com