Bræðslan
Hátíðir

Uppgötvaðu Ísland

Bræðslan

Ósk
Hef séð
LandshlutiAusturland
Heimsóknir1,737 skoðað
VefsíðaOpna vefsíðuLeiðarlýsingOpna í korti

Bræðslan hefur styrkt sig í sessi sem einn af áhugaverðari stoppistöðum Íslands yfir sumarmánuðina. Í gegnum tíðina hafa komið fram á Bræðslunni Emilíana Torrini, Damien Rice, Belle & Sebastian, Magni, Fanfarlo, Lay Low, Þursaflokkurinn, Megas og Senuþjófarnir, Páll Óskar og Monika, Eivör Pálsdóttir, KK og Ellen svo fáein séu nefnd.

Bræðslan er haldin helgina fyrir verslunarmannahelgina.

Að jafnaði hafa rúmlega 1.000 manns sótt Borgarfjörð eystri heim Bræðsluhelgina sem verður að teljast ágætis viðbót við íbúafjöldann sem telur um 140 manns. Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndri síldarbræðslu þarsem tónleikar hátíðarinnar fara fram að laugardagskveldi helgina fyrir verslunarmannahelgi.

Allar nánari upplýsingar á www.borgarfjordureystri.is og www.puffins.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Borgarfjörður eystri

Bræðslan er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

Einkunnir og umsagnir

Bræðslan

Bræðslan er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.