Óspakseyrarkirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Óspakseyrarkirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVestfirðir
Byggingarár1939
TurnJá

Kirkju að Óspakseyri í Bitrufirði á Ströndum er getið í kirknatali Páls Jónssonar biskups frá því um 1200 og er hún samkvæmt máldögum helguð guði, Maríu guðsmóður, Jóhannesi postula og guðspjallamanni, Ólafi konungi, Þorláki biskupi og heilagri Margréti mey. Kirkjan mun snemma hafa orðið annexía frá Prestbakka. Hún virðist ekki hafa eignast jarðir, en átti lambseldi, skæðatoll, ostatoll og málsmjólk á bæjum. Einnig átti hún rekaítak og hvalreka.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vestfjörðum

Einkunnir og umsagnir

Óspakseyrarkirkja

Óspakseyrarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar