Ögurkirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Ögurkirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVestfirðir
Byggingarár1859
ByggingarefniTimber
ÞakefniCorrugated iron
Stærð9,52 × 5,12 m
TurnJá
FriðunFriðuð frá 1990

Ögur er stórbýli og kirkjustaður í Ögurvík, milli Skötufjarðar og Mjóafjarðar við Ísafjarðardjúp. Kirkja hefur verið þar síðan snemma á öldum og átti hún nokkrar jarðeignir - Strandsel, Skarð í Ögursveit og Smiðjuvík á Hornströndum.

Ögurkirkja er stórt og vandað timburhús, reist 1859. Á hún margt góðra gripa en margir hinna dýrmætustu þeirra eru komnir á Þjóðminjasafn Íslands. Eftir eru altaristafla eftir Anker Lund, máluð 1889 og sýnir upprisuna. Kaleikur með ártalinu 1854 og fágætir ljósahjálmar. Þá eru í turni tvær klukkur, önnur forn með áletrun og mynd af Önnu og Maríu með Jesú.

 

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vestfjörðum

Einkunnir og umsagnir

Ögurkirkja

Ögurkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar