Uppgötvaðu Ísland
Kirkjur Íslands
Einarsstaðakirkja er timburhús, 10,91 m að lengd og 6,37 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af vesturstafni er ferstrendur turn með íbjúgu píramítaþaki. Kirkjan er klædd listaþili, þak bárujárni, turnþak sléttu járni og hún stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar og tveir á kórbaki. Í þeim er krosspóstur og rammar með sex rúðum. Sexrúðu gluggi, heldur minni, er ofarlega á framstafni. Lítill hringgluggi er á framstafni turns og ferstrend hljómop með hlera fyrir á hvorri hlið. Fyrir kirkjudyrum eru fjölspjalda vængjahurðir. Yfir þeim er stórstrikaður bjór og strikaðir faldar til hliða.
Inn af kirkjudyrum er gangur og skásettir bekkir eru hvorum megin hans en veggbekkir í kór. Prédikunarstóll er syðst í innstu bekkjarröð. Setuloft á bitum er yfir fremri hluta framkirkju og stigi í norðvesturhorni. Tvær súlur eru undir frambrún þess. Veggir eru klæddir spjaldaþili upp undir syllu við neðri brún glugga en standþiljum ofan hennar. Efst á veggjum er strikasylla en yfir kirkjunni stafna á milli er panelklædd súð og skammbitaloft.
Heimild: Sjá hér
Einarsstaðakirkja
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hluti af menningararfi.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.