Uppgötvaðu Ísland
Álftafjörður er næstysti fjörðurinn, sem gengur suður úr Ísafjarðardjúpi. Arnarnes skilur fjörðinn frá Skutulsfirði til norðurs en til suðurs afmarkast fjörðurinn af Kambsnesi. Við Álftafjörð stendur þorpið Súðavík en fyrir ofan það gnæfir svipmikið fjall, Kofri. Inn úr botni fjarðarins ganga tveir stuttir dalir, Hattardalur og Seljalandsdalur. Úr Seljalandsdal má ganga yfir í bæði Önundarfjörð og Dýrafjörð.Norðmenn voru umsvifamiklir í Álftafirði um aldamótin 1900 og höfðu þar bæði hvalveiðistöðvar og síldarvinnslu.
Álftafjörður (VF) er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Engar einkunnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Álftafjörður (VF) er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.