Afternoon Cottages
Sumarhús og bústaðir

Uppgötvaðu Ísland

Afternoon Cottages

Ósk
Hef séð
LandshlutiSuðurland
Heimsóknir5,301 skoðað
VefsíðaOpna vefsíðuLeiðarlýsingOpna í korti
Fimm rúmgóð 25 m2 sumarhús til leigu rétt undir Heklurótum á suðurlandi. Aðeins um 20-25 mínútna keyrsla norðaustur frá Hellu. Mikið af náttúruperlum í kring, Hekla, Landmannalaugar, Rauðufossar, Fossabrekkur, Þjófafoss, Hjálparfoss og fleira.
Húsin eru umkringd stórbrotinni náttúru. Það er nánast allt til alls í húsunum. Þau eru í raun uppbyggð eins og stúdíó íbúð. Vel útbúið eldhús, með litlum ísskáp, tveggja hellu eldavél, örbylgjuofn, brauðrist, kaffivél og nánast öll þau áhöld sem þarf til eldunar. Nóg af kaffi og te fyrir alla gesti.

Uppábúið rúm með góðum dúnsængum og koddum. Rúmið er 160×200 cm og rúmast vel fyrir tvo gesti. Sjónvarp er á veggnum að stærð 32″ (Hús 1-3) eða 43″ (Hús 4-5) þar sem hægt er að horfa á Netflix, YouTube eða RÚV. Frítt Wi-Fi. Tveir þæginlegir armstólar sem gott er að sitja í og slaka á. Möguleiki er að stækka eldhúsborðið ef gestir vilja borða saman eða fá sér kaffibolla saman.
Sér baðherbergi í hverju húsi með góðri sturtu. Handklæði eru innifalin. Hand- og baðsápa eru til staðar.
Nánari upplýsingar er hægt að sjá á heimasíðu okkar www.afternooncottages.is/is/

Afternoon Cottages er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

Einkunnir og umsagnir

Afternoon Cottages

Afternoon Cottages er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.