Sundlaugin á Húsafelli er ein vinsælasta afþreyingin á svæðinu. Hún var upphaflega byggð árið 1965 en síðan hafa miklar endurbætur verið gerðar á lauginni og umhverfi hennar. Laugarnar eru tvær, ásamt tveim heitum pottum og vatnsrennibraut.
Símanúmer sundlaugar: 435-1552, Póstfang : husafell@husafell.is
Á sumrin er opið alla daga, en á veturna er opið um helgar. Í desember og janúar er lokað. Heita vatnið í sundlaugina kom upphaflega úr laugum í Selgili en nú frá borholum í sama gili 77°C og Hveragili 64°C. Samtals um 45 l/sek
Verð
Fullorðnir: 600 kr
Börn: 400 kr
Heimild: Sjá hér
Mynd: Sundlaugin á Húsafelli