Siglufjarðarkirkja er um 35 metra löng og 12 metra breið. Hún tekur um 400 manns í sæti. Turninn er um 30 metra hár og tvær miklar klukkur þar (sú meiri um 900 kíló að þyngd, að sögn) eru gjöf frá Sparisjóði Siglufjarðar, 1932.
Skipslíkan hangandi úr lofti sunnanmegin er gjöf arkitektsins og fjölskyldu hans og afhent á vígsludegi. Er þar á ferðinni ævagamall norður-evrópskur siður; fleyið táknar alheimskirkjuna, sem er hið trausta far okkar á siglingu um mislyndan veraldarsjóinn, til ákvörðunarstaðarins á himnum. Mesta prýði kirkjunnar, altaristaflan, er máluð af Gunnlaugi Blöndal og var afhjúpuð 5. september 1937. Steindir gluggar eru eftir listakonuna Marie Katzgrau, settir í kirkjuskipið 1974. Fjórir veglegir stólar í kór eru útskornir af Hirti Ármannssyni, tveir þeirra gefnir 1975 og hinir nokkru síðar.
Glæsilegt safnaðarheimili var tekið í notkun á kirkjuloftinu 1982 en Gagnfræðaskóli Siglufjarðar hafði tekið þar til starfa 13. október 1934 og haft aðsetur í 23 ár. Þar inn af var til ársins 2005 gamalt, fótstigið orgel í eigu kirkjunnar en á það mun sr. Bjarni Þorsteinsson hafa samið hátíðarsöngvana. Það var síðan lánað niður í Þjóðlagasetur og er einn af helstu dýrgripum þess. Núverandi orgel er 24 radda hljóðfæri, smíðað í Aquincum-verksmiðjunum í Búdapest í Ungverjalandi og sett upp og vígt 25. ágúst 1996.
Heimild: Sjá hér
Eigandi: Jón Ingi Cæsarsson - Flickr
Eigandi: Böðvar Eggertsson - Flickr
Eigandi: Anton Stefánsson
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com