Á toppi Helgafells við Stykkishólm er útsýnisskífa sem hjálpar gestum að bera kennsl á landslagið í kring. Helgafell er aðeins 73 metra hátt en frá toppnum er víðsýnt yfir Helgafellssveit, Þórsnes, Breiðafjörð og fjallgarð Snæfellsness.
Í góðu skyggni má einnig sjá til fjalla á sunnanverðum Vestfjörðum og í Dölum. Helgafell er jafnframt einn þekktasti sögustaður Snæfellsness og tengist meðal annars Guðrúnu Ósvífursdóttur úr Laxdælu.
Útsýnisskífa stendur á toppi Helgafells við Stykkishólm.