Uppi á Bustarfelli í Vopnafirði er útsýnisskífa sem sýnir helstu fjöll og örnefni í nágrenninu. Frá skífunni er frábært útsýni yfir Hofsárdal, sem er eitt helsta sögusvið Vopnfirðingasögu.
Í góðu skyggni má meðal annars sjá Snæfell og Herðubreið. Hægt er að komast akandi að skífunni á góðum bíl, en einnig er svæðið áhugaverður göngustaður ofan við minjasafnið á Bustarfelli.
Uppi á Bustarfelli í Vopnafirði er útsýnisskífa með miklu útsýni yfir Hofsárdal.