Uppgötvaðu Ísland
Surtsey er syðsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum. Hún er jafnframt sú eina þeirra sem hefur myndast á sögulegum tíma, eða í mesta neðansjávareldgosi á sögulegum tíma. Menn urðu gossins varir klukkan 7:15 að morgni þess 14. nóvember 1963, þegar það braust upp úr yfirborði sjávar skammt frá fiskibátnum Ísleifi II frá Vestmannaeyjum. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu (rúmlega 900m) fjarlægð og reyndist hitastigið vera nálægt 10°C. Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Næsta morgun sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist einhverjum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt í Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Síðan þá hefur flatarmál eyjunnar minnkað úr 2,7 km2 í 1,4 km2 sökum rofs sjávar og vinda. Eyjan er um 20 km suðvestur af Heimaey, eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.
Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 7. júlí 2008.
Surtsey er friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá, umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni. Surtseyjarfélagið hefur eyjuna í umboði umhverfisstofnunar.
Staðurinn getur verið hluti af stærri ferð um Suðurland, þar sem auðvelt er að tengja heimsóknina við fleiri áfangastaði á svæðinu.
Surtsey er ung eldfjallaeyja sem myndaðist við eldgos undir sjó. Síðan hefur haf, vindur og veðrun stöðugt mótað eyjuna.
Eyjan er einstakt rannsóknarsvæði þar sem fylgst hefur verið með landnámi plantna og dýra á nýju landi.
Allt árið
Aðgangur að Surtsey er stranglega takmarkaður vegna náttúruverndar og rannsókna.
Surtsey
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Eyjan er einstök á heimsvísu.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.