Sundlaugin er 3,5 km frá þjóðvegi 85 á leið til Bakkafjarðar, 12 km frá Vopnafjarðarkauptúni. Laugin stendur á bakka Selár þar sem hún rennur í grunnu gljúfri. Leitun er að jafn fagurri staðsetningu fyrir sundlaug enda laugin rómuð fyrir umhverfi sitt.Gæsla er við laugina að sumarlagi.Laugin er að jafnaði 30-33°C. Í enda hennar er 60 cm djúp vaðlaug, 32-35°C. Tveir heitir pottar eru við laugina, annar 38-40°C, hinn 40-42°C.Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott. Nestisaðstaða og stór sólpallur er við laugina.Heita vatnið kemur upp úr heitri laug við sundlaugina, á seinni árum hefur verið reynt að auka vatnsmagnið með borun nokkrum sinnum með fremur litlum árangri.Laugin var byggð sumarið 1949 af félagsmönnum í Einherja, ungmennafélagi Vopnafjarðar. Byggðu þeir laugina að mestu í sjálfboðavinnu og var hún vígð sumarið 1950. Endurbætur hafa verið gerðar á lauginni og er hún í ágætu ástandi, ávallt hefur þess verið gætt að halda umhverfi laugarinnar snyrtilegu. Fram undir 1975 var sundkennslu þannig háttað að nemendur dvöldu 1/2 mánuð í vist í húsum laugarinnar og mun oft hafa verið glatt á hjalla á þessum sundnámskeiðum.Laugin er opin vetri en ekki er vörður á staðnum. Sundkennsla fer fram í sundlauginni að hausti og vori.
Sími: 473 1499
Heimild: Sjá hérMynd: Jón Sigurðarsson
Sundlaugin Selárdal er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Engar umsagnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Sundlaugin Selárdal er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.