Uppgötvaðu Ísland
Það er í Hofshreppi í Skagafjarðarsýslu. Hæð þess yfir sjávarmál var 97 m. Eftir að virkjun kom, hefur vatnsborðið hækka$ svo nokkru munar. Flatarmál þess nú er 3.9 km. og mesta dýpi 23 m. Í það renna Tunguá, Fljótaá, Húnstaðaá, Húnstaðalækur, Stórilækur og fleiri. Útfallið er til norðurs um Fljótaá. Stífla, vegna virkjunar er neðan við vatnið. Hefur það valdið stórfelldum breytingum á stærð vatnsins og umhverfi þess.
Mikill og góður silungur er í Stífluvatni. Eingöngu vatnableikja, uppalningur á heimaslóðum. Getur hann orðið allvænn allt að 6 pund. Helst stofninn í nokkuð góðu jafnvægi. Er þó talið að gjarnan mætti veiða meira en gert er.
Sumarfagurt er í Stíflunni, svo fáum stöðum er til að jafna. Þroskamikill gróðurinn, með þeim sterku litum, sem aðeins hið skamma sumar norðursins getur skapað, og miðnætursólin við hafsbrún. Sagt er að fólkið beri svipmót af því umhverfi, sem fóstrar það.
Heimild: Sjá hérMynd: Jón Ingi
Stífluvatn
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Stífluvatn er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.