Uppgötvaðu Ísland
Tjörnin, einnig kölluð Reykjavíkurtjörn, er grunnt stöðuvatn í miðbæ Reykjavíkur. Vatnið í Tjörnina kemur úr Vatnsmýrinni sunnan við hana og rennur úr henni um Lækinn, sem liggur undir Lækjargötu og til sjávar í Reykjavíkurhöfn.
Við Tjörnina standa margar merkilegar byggingar, þar á meðal Ráðhús Reykjavíkur, Iðnó, Tjarnarskóli, Listasafn Íslands og Fríkirkjan í Reykjavík. Í nágrenni hennar er einnig Hljómskálagarðurinn, eini lystigarðurinn í miðborg Reykjavíkur.
Í og við Tjörnina er fjölbreytt fuglalíf og svæðið er vinsælt útivistarsvæði. Sérstaklega er algengt að foreldrar með ung börn heimsæki Tjörnina til að skoða fuglana og gefa öndunum brauðmola.
Mynd: Anton Stefánsson
Reykjavíkurtjörn
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Reykjavíkurtjörn / Tjörnin er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.