Langisjór er 27 km² stórt stöðuvatn í Vestur-Skaftafellssýslu, suðvestan við Tungnár- og Skaftárjökul. Það er í 670 m hæð og mesta vatnsdýpi er 75 m. Sunnan við Langasjó er Sveinstindur en austan hans eruFögrufjöll. Þau ganga víða með þverhníptum klettahöfðum fram í Langasjó. Langisjór er meðal tærustu fjallavatna á Íslandi. Á fyrri hluta tuttugustu aldar rann kvísl úr Skaftá í vatnið og þá var það jökullitað. Nafn sitt dregur vatnið af lengd sinni en það er um 20 km langt í stefnu norðaustur - suðvestur og 2 km breitt. Affall Langasjávar nefnist Útfall og rennur í Skaftá. Vegna þess hve afskekkt vatnið er fannst það ekki fyrr en á 19. öld. Nú fara ferðamenn að Langasjó í auknum mæli en það er auðvelt að ganga kringum vatnið. Gaman er að ganga á Fögrufjöll auk þess sem hægt er að ganga með þeim mörgu vötnum eða lónum sem leynast milli fjallanna. Stundum hefur ferðafólk siglt á gúmmíbátum á Langasjó og hefur þá verið vinsælt að sigla kringum eyjuna Ást í Fagrafirði. Fiskur er í vatninu og þar er stunduð stangveiði.
Heimild: Sjá hérMynd: Hákon Þ
Langisjór er umlukinn fjöllum.
Engar umsagnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Svæðið er friðsælt og stórbrotið.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.