Landmannalaug
Náttúrulaugar

Uppgötvaðu Ísland

Landmannalaug

Ósk
Hef farið
TegundHeitur hver
Ráðlagður heimsóknartími1 klst.
VirkniJá

Landmannalaugar er íslensk laug og vinsæll ferðamannastaður á Fjallabaksleið nyrðri austur af Heklu. Vegur þangað er aðeins fær að sumarlagi. Mikill jarðhiti er í Landmannalaugum og vinsæl náttúruböð. Jarðhitinn tengist einu mesta háhitasvæðilandsins, Torfajökulssvæðinu. Landmannalaugar eru rómaðar fyrir náttúrufegurð og litríkt berg, þar er mikið um líparít og líparíthraun, hrafntinnu o. fl. Vinsæl gönguleið Laugavegurinn liggur milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Vanalegt er að ganga þá leið á fjórum dögum en stundum er bætt við ferð allt til Skóga yfir Fimmvörðuháls milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls.

Ferðafélag Íslands rekur skála í Landmannalaugum og þar er skálavörður að sumri. Ferðafélagið reisti fyrst sæluhús í Landmannalaugum árið 1951 en núverandi hús er að stofni til frá 1969. Það stendur í um 600 metra hæð við jaðar Laugahrauns og þar nálægt eru heitar uppsprettur sem vinsælar eru til baða.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Rafn Sig

Heitir hverir
Bílastæði
Salerni
Merkt gönguleið

Jarðhitaeinkenni

Landmannalaug er náttúruleg jarðhitalaug á Landmannalaugasvæðinu og er vinsæll viðkomustaður ferðamanna á hálendinu.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Landmannalaug

Landmannalaug er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar