Uppgötvaðu Ísland
Hrísey er hluti Akureyrarkaupstaðar en eyjan er í utanverðum Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey sem einnig er eina eyjan hér við land þar sem búa fleiri en í Hrísey. Heimsókn út í Hrísey er ógleymanlegt ævintýr, enda er eyjan ekki kölluð "Perla Eyjafjarðar" að ástæðulausu.
Hún er um 7,5 km að lengd og 2,5 km að breidd þar sem hún er breiðust að sunnanverðu. Eyjan mjókkar til norðurs og þar rís hún hæst í um 110 m.y.s. þar sem stendur viti sem reistur var á svonefndum Bratta árið 1920.
Norðurhluti Hríseyjar, Ystabæjarland, er alfriðað land í einkaeign. Sérstakt leyfi landeiganda þarf til að fá að fara um þann hluta eyjarinnar.
Í Hrísey er u.þ.b. 200 manna byggð í snyrtilegu sjávarþorpi með hellulögðum götum, ræktarlegum görðum og útsýni sem á sér fáa líka til fjallahringsins um Eyjafjörð.
Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar, nýtt og glæsilegt skip, á einnar til tveggja stunda fresti (sjá áætlun) frá Árskógssandi. Tekur siglingin aðeins um 15 mínútur.
Í eynni er m.a. hægt að fara í skemmtilegar gönguferðir, taka þátt í vagnferð á traktor með leiðsögn eða vitaferð, skoða hákarlasafnið í húsi Hákarla Jörundar, fara í sund eða bara njóta friðsældarinnar og fuglalífsins á þessum einstaka stað. Hægt er að nálgast ýtarlegri upplýsingar um ferðaþjónustu á vef Hríseyinga og einnig skoða upplýsingar í eftirfarandi bækling um Hrísey.
Heimild: Sjá hér
Hrísey er stór eyja í Eyjafirði þar sem jöklar, berggrunnur og sjávarrof hafa mótað landslagið.
Eyjan er þekkt fyrir fuglalíf, gönguleiðir og byggðina í suðurhluta hennar.
Sumar
Reglulegar ferjusamgöngur gera eyjuna aðgengilega fyrir dagsferðir.
Hrísey
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Eyjan hentar vel fyrir gönguferðir.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.