Uppgötvaðu Ísland
Hótel
Hótel Djúpavík er staðsett í stórbrotnu landslagi við botn Reykjarfjarðar á Ströndum. Djúpavík er u.þ.b. 75 km norðan við Hólmavík (sjá leiðarlýsingu hér).
Hótel DjúpavíkÁ efri hæð hótelsins eru 8 hlýleg tveggja manna herbergi með handlaugum. Á gangi eru snyrtingar með karla- og kvennasalernum og steypiböðum.
Við bjóðum upp á morgunverðarhlaðborð og kvöldmat í matsal sem er mjög sérstakur og fallegur. Kaffi, te, brauð og kökur eru á boðstólum yfir daginn, ásamt léttum veitingum í hádeginu.
Djúpavík er skjólgóð vík í Reykjarfirði á Ströndum, svæði sem er austasti hluti Vestfjarða.
Umhverfið er friðsælt og afskekkt, ósnert af nýjustu “framförum”, þar sem kyrrðin ræður ríkjum og náttúruöflin halda áfram að móta hrjúf fjöllin.
Hótel Djúpavík er í byggingu sem einu sinni hýsti konurnar sem unnu við síldarsöltun á síldarplaninu á Djúpavík.
Ef þú ert að leita að einfaldari gistingu fyrir litla hópa allt að 10 manns, er Álfasteinn sumarhúsið okkar frábær kostur.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi verð, vinsamlegast hafið samband við okkur ísíma 451 4037 eða á netfangið djupavik@snerpa.is eða hér.
Þéttbýlisstaðir · 0.10 km · Í nágrenninu
Kirkjur · 7.80 km · Fjarlægð í beinni línu.
Tjaldstæði · 11.79 km · Fjarlægð í beinni línu.
Náttúrulaugar · 12.62 km · Fjarlægð í beinni línu.
Fjallaskálar · 11.87 km · Í nágrenninu
Fossar · 16.59 km · Fjarlægð í beinni línu.
Náttúrulaugar · 18.13 km · Fjarlægð í beinni línu.
Sundlaugar · 18.40 km · Fjarlægð í beinni línu.
Kirkjur · 21.44 km · Fjarlægð í beinni línu.
Þéttbýlisstaðir
Hótel Djúpavík
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hótel Djúpavík er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.