Holuhraun varð til í stóru sprungugosi norðan Vatnajökuls 2014–2015, þegar kvika kom úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu. Nýja hraunið sýnir vel kraft eldgosa og hvernig landslag hálendisins getur breyst á skömmum tíma. Svæðið er afskekkt og aðstæður geta verið erfiðar; kanna þarf færð og öryggisupplýsingar áður en lagt er af stað.