Uppgötvaðu Ísland
Elliðaárdalurinn er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Hann er jafnframt eitt vinsælasta svæðið til útivistar, leikja og íþróttaiðkunar af ýmsu tagi. Dalurinn einkennist af fjölbreyttu umhverfi, landslagi og gróðurfari en þungamiðjan eru Elliðaárnar sem dalurinn er kenndur við.
Elliðaár falla úr Elliðavatni í norður og vestur milli Breiðholts og Selás- og Ártúnsholt í tveimur kvíslum. Má segja að þær skipti borginni í tvennt við Elliðaárósa. Lax gengur upp í árnar og eru þær með vinsælli laxveiðiám á suðvesturhorni landsins. Elliðaár voru virkjaðar árið 1921 og er stærsta stíflan nálægt gamla Árbæjarbænum. Í Elliðaárdal hefur verið stunduð skógrækt en þar má einnig finna fjölda náttúrulegra gróðurlenda. Fuglalíf er mjög auðugt í dalnum. Meðal áhugaverðra staða sem eru í Elliðaárdal eða í jaðri hans eru Árbæjarsafn, Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur og hesthúsahverfi Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal.
Heimild: Sjá hér
Elliðaárdalur er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Elliðaárdalur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Elliðaárdalur er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.