Duggönd er meðalstór köfunarönd sem verpir á Íslandi, einkum við næringarrík vötn. Mývatn er eitt mikilvægasta varpsvæði tegundarinnar hér á landi.
Duggönd kafar eftir vatnaskordýrum, lindýrum og öðrum smádýrum. Stór hluti íslenska stofnsins er farfugl en nokkrar duggendur hafa vetursetu hér.