Spói

Spói er stór vaðfugl og algengur varpfugl á Íslandi. Hann er auðþekktur á löngum, bognum goggi og einkennandi flautandi kalli. Spói heldur sig einkum á graslendi, mýrum og móum.

Hann nærist aðallega á skordýrum, ormum og öðrum hryggleysingjum. Íslenskir spóar eru farfuglar og halda til Vestur-Afríku yfir veturinn.