Auðnutittlingur

Auðnutittlingur er lítill finkufugl sem sést á Íslandi árið um kring. Hann heldur sig gjarnan í birkikjarri, görðum og öðrum gróðursælum svæðum.

Hann nærist aðallega á fræjum en tekur einnig skordýr, sérstaklega á varptíma. Auðnutittlingar sjást oft í hópum utan varptíma.